Jólateljari

Auglýsing

SPEKI VIKUNAR

sá sem á síđasta orđiđ orđ hans eru lög

Innskráningar kubbur

stemmmari

15. febrúar 2009 klukkan 17:03
Hæ og hó
Hér eru komnar inn nokkrar myndir frá Utanvinareisunni í gær
Takk fyrir okkur

Myndir

kv
Íris Mjöll

Svei mér ţá...

31. janúar 2009 klukkan 23:20
Haldið þið ekki bara að Utanvinafélagið sé að vakna úr dvala. Utanvinafélagara ætla að fjölmenna í leikhús laugardaginn 14. febrúar.
Við allavegana þorum ekki öðru en að byrja í rólegheitum og auka svo ferðina þegar líður á.
Hlakka allavegana til að sjá alla og bíð spennt eftir frábæru kvöldi
kv
Íris Mjöll

zzzZZZZZzzzzzz...

14. febrúar 2008 klukkan 08:44

Þessa mynd má túlka á ýmsan máta. Hvort þetta tengist Utanvinafélaginu þessa dagana þori ég ekki að fullyrða en túlki hver fyrir sig.

IMV

ferđasaga Írisar

06. janúar 2008 klukkan 22:58

Við skelltum okkur á milli jóla og nýárs í smá jeppatúr eins og fyrr hefur komið fram. Við maggi,Nonni Össi,Lóló og Bessi hressi skunduðum fjallabak nyrðra um hádegi á föstudag. Allt gekk glimrandi vel alveg inn að Landmannalaugum. Við reyndar fórum ekkert voðalega hratt yfir vegna erfiðs færis. Skuggalegur púðrari á ferðinni. Þegar við komum við Kirkjufellsvatn þá byrjaði fjörið. Hitamælirinn sýndi okkur að það væri - 26 stiga frost. Við keyrðum niður í dalinn og örlítið of langt því allt í einu þá brotnaði klakinn undan okkur. Gps sýndi bara smá lækjarsprænu en við vorum bara mætt í stóra vatnið. Enda hafa ekkert verið neitt eðlilegir vatnavextir undanfarna mánuði á hálendinu. Pattinn okkar pompaði vel ofan í og ég sá líf mitt bara fjara út. Ég var nánast á kafi.....(nei ekki alveg). Hann pompaði niður mín megin og ég sá bara  fallegt fljót undir mér. Við skriðum út úr bílnum bílstjóramegin svo við færum nú ekki á bólakaf með bílnum. En betur fór en horfði. Össi skellti spottanum aftan í hjá sér og í okkur og ætlaði að reyna að draga okkur uppúr en allt kom fyrir ekki. Pattinn sýndi mótþróa og ákvað að setjast bara betur í vökina. Þeir reyndu aftur en þá bara ákvað hann að pirra okkur aðeins meira og affelga afturdekkið bílstjóramegin. Sem betur fer gerðist það þeim megin, annars hefði ekki verið nokkur leið að laga þetta. Allt tókst þetta hjá strákunum að koma dekkinu á og bílnum upp úr vatninu. Össi og Maggi fengu sér smá sundsprett í Kirkjufellsvatni. Þeir hrundu niður í gegnum ísinn. En varð ekkert meint af. fengu bara að skipta um föt í staðinn. Bíllinn var tékkaður upp á drullutjakkinn og wolllaahhhaaaa snjallræði drengjanna varð til þess að við gátum haldið áfram förinni.  Á móti okkur ætluðu víkararnir að koma eldgjáarmegin frá. Við heyrðum í þeim í talstöðinni og þar var bara bras. Þeir urðu að snúa  allir við (fimm bílar) vegna bilanna og brasss. Ekki stoppaði það okkur. Við héldum ótrauð áfram. Klukkan var orðin ansi margt og hún komin vel yfir miðnætti þegar fyrsti bjórinn var opnaður. Ferðin gekk þannig að einn keyrði á undan og svo hinn og dró upp úr festu.´Ég bara man eiginlega ekki eftir svona svakalega leiðinlegri færð. Þetta kemur stundum á köflum en vóóó....heila ferð!!! Alveg spurning um að gefa manni sko smá séns hér á kantinum :-) . Allt gekk þetta vel, þrátt fyrir miklar pælingar á ferðinni og fundum við það að við eigum alveg yndislega ferðafélaga sem gefast ekki upp þó á móti blási... Við enduðum svo loksins í Hólaskjóli rúmlega 11.00 á laugardagsmorgninum, vel þreytt og ræstum strákana þar. Þeir voru alveg þokkalega útlítandi þrátt fyrir erfileika á bílunum sí  num nóttina áður. Tvennt var í stöðunni að gera þá. Annaðhvort var að rífa svefnpokana,matinn og allt draslið úr bílnum og leggja sig inni í Hólaskjóli, eða skella sér í Víkina til Vilborgar okkar og fá okkur feitan og brjálæðislega góðan borgara. Ég var orðin svo nett þreytt að ég bara heimtaði að fara í víkina og bruna svo heim. Össi, Lóló og Bessi hressi ákváðu að gera slíkt hið sama, enda ekki nokkur maður sem freistast ekki á borgurunum hennar Vilborgar. Þegar allir voru saddir,svefnlausir og sáttir þá var ferðinni heitið suður á bóginn. Keyrðum frá vík til Selfoss á 50-60 km hraða því eftir vatnsdæmið á fjöllum var svo mikill klaki í dekkjunum að bíllinn hristist allur eins og geðsjúklingur.

Mikið var samt gott að koma heim. Ég rotaðist nánast strax eftir heitu sturtuna sem ég skellti mér í  enda þreytt eftir rúma 29 klt í bílnum. Við höfðum sem betur fer vit á að fara heim því það skellti á svo kolbrjáluðu veðri á laugardeginum að hjálparsveitir og björgunarsveitir voru kallaðar út.

Þrátt fyrir mikið basl var þetta alveg frábær ferð og ég get bara ekki beðið eftir að fara í næstu ferð. Vonandi verður verðrið okkur hagstætt svo maður geti brunað í 2 ferðir í janúar...allavegna. 

Fyndið nokk sem ég frétti á fjöllum. Patrolinn minn er víst kallaður af gömlum jeppakörlum...........GAMLA MELLAN (hvort það tengist númerinu ML 511 eða....) Vil bara helst ekki vita ástæðuna.Reyndar var Össi,Lóló og Bessi búin að finna alveg snilldar nafn á bílinn minn. ML (manntaskólinn á laugarvatni) 511 (fimm ellefuára)...sem þeim fannst miklu betra en ein ellefu ára...lol ...smá local hér á ferðinni  .Annars vil ég koma þakklæti til Ella og Vilborgar fyrir yndislegar móttökur eins og alltaf í Víkinni. Alveg ómetanlegt að koma við þar eftir fjallaferðarnar.  Takk fyrir okkur elskurnarHlæjandi

Áskorun

29. desember 2007 klukkan 19:02

skora á Írisi Mjöll að koma með ferðasögu frá síðustu ferð hennar tíl fjalla áramótakveðja

Ægir Sem Heyrði Sögu

Kveđja

26. desember 2007 klukkan 13:52
Utanvinafélagið sendir öllum velunnurum sínum óskir um gleðileg jól  farsældar á nýju ferðaári. Með von um að ferðirnar verði margar og skemmtilegar.

jćjć

09. desember 2007 klukkan 13:43
þá eru að koma jól og ekki er tími fyrir aðalfund á þessu ári Glottandi en við reinum að gera betur á því næsta  stefnum að því að vera með aðalfundin 10-01-2008 Svalur kverng líst ikkur á það endilega komentið

kveðja Ægir

jćja

07. desember 2007 klukkan 21:15

Þá er Maggi búinn að auka dótastöðulinn TETRA varð fyrir valinu óskum við honum til hamingju með gripinn Svalur

Já kćru félagar allt í áttina ....allt í áttina

09. nóvember 2007 klukkan 22:27




Sjá nánari snjódýpt hér http://andvari.vedur.is/athuganir/urkoma/snj0.html?
IMV

Utanvinautanlandsferđ

08. október 2007 klukkan 09:33

Nú er langt um liðið frá síðasta bloggi. Best að uppfæra aðeins.
Á föstudaginn nk. eru Utanvinakarlarnir að fara erlendis. Þeir ætla að skella sér til kóngsins köben. Eitthvað töluðu þeir um að ætla að skella sér í bíltúr til Germany. Einnig heyrði ég að þeir ætla víst eitthvað að kanna gæði Carlsbergs þarna ytra. Þeir voru víst ekki vissir hvernig hann smakkast....huhummmmm
Allavegna þá eru þeir farnir að fá fiðrildin í magann fyrir ferðinni og bíðum við konurnar spenntar eftir gjöfunum sem þeir færa okkur þegar þeir snúa aftur heim á klakann. Strákar mínir. Passið ykkur bara á bílunum,bjórnum,vændiskonunum,tóbakinu,búðunum og já passið bara hvorn annan því í okkar kvennahuga þá eruð þið eins og litlir ungar sem yfirgefið hreiðrin í fyrsta sinn. Hafið bara símanúmerin okkar skrifuð á miða í vasanum ykkar. Því þið vitið að þið eruð hálf ósjálfbjarga þarna úti í hinum stóra heimi án okka. Við stelpurnar bíðum spenntar eftir að fá að heyra frá ykkur. Enda erum við alltaf til í svona björgunarleiðangra og ekki óvanar slíkum ferðum...ha ha ha
Góða ferð elskurnar og njótið ykkar í botn.

Hvað segið þið annars stelpur....eruð þið búnar að leggja drög að Utanvinakvennaferðinni okkar ?
Kv
Íris Mjöll

Könnun

Hversu stórum túttum ekur ţú um á ?

Atburđarteljari

Utanvinir

Ađ sjálfsögđu

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys Funny Images, Now THAT’S cosplay..